Múr og mál hefur tekið að sér að endurnýja þakjárnið á húsinu, endurnýja nánast alla glugga í húsinu ásamt að gera við tré og múrskemmdir, og mála svo að viðgerðum loknum fyrir húsfélagið Tunguseli 4-10. Verkið verður unnið veturinn 2011-2012 og mála verður sumarið 2012.
Múr og mál hefur tekið að sér að gera við múr-tréskemmdir á framhlið hússins að Hraunbæ 116-120 fyrir húsfélagið og mála svo að viðgerðum loknum. Viðgerðir verðar unnar veturinn 2011, og málun verður unnin vor-sumar 2012.
Múr og mál hefur tekið að sér að gera við blokkina að Furugrund 30-34 í Kópavogi. Það á að leysa málningu af húsinu að stórum hluta og filta. Gert verður við múr og tréskemmdir og blokkin svo máluð að viðgerðum loknum. Verkinu er skipt upp í 2 áfanga. 1. áfangi verður viðgerðir á blokkinnu og er það unnið haust 2011. Seinni áfangi er málun á blokkinni og er það unnið sumarið 2012.
Múr og mál hefur tekið að sér blokkina að Hátúni 4. Gera á við múrskemmdir, taka niður handrið og sandblása og galvanhúða ásamt því að mála blokkina að viðgerðum loknum. Verkið verður unnið í tveimur áföngum. 1. áfangi eru viðgerðir og verða þær unnar haust 2011. Seinni áfanginn er málun og verður það unnið sumarið 2012.